31.10.2008 | 00:41
Er þetta mögulegt?
Ég er einn fjölmargra sem á nokkra upphæð í séreignarsparnaði. Ég á víst að geta byrjað að taka lífeyri úr þessum sjóði sextugur, en get líka frestað því og fengi þá hærri upphað á mánuði á skemmri tíma. Nú spyr ég mig hvort ekki er mögulegt að opna fyrir að nýta hluta sjóðsins til að losna við skuldir, s.s. yfirdrátt og myntkörfubílalán, sem líklega munu gera mig gjaldþrota á innan við hálfu ári, þó ég haldi vinnulaunum mínum. Það er því miður ekki útlit fyrir að ytri aðstæður (gengi og verðbólga) breytist svo til batnaðar, að gjaldþol verði viðráðanlegt. Ég spyr því hvort ekki megi breyta lögum um séreignasjóði á þann veg, að unnt sé að nýta hluta eignar, t.d. þriðjung, til að greiða upp örugga gjaldþrotavalda og að ég komist aftur á þann grunn að geta hafið séreignarsparnað að nýju? Auðvitað yrði slík fjárhæð skattlögð eins og lög segja til um. Hvað þarf til? Er ekki slík leið örugglega í þágu allra í efnahagskreppunni? Hver myndi missa spón úr aski sínum við slíka breytingu? Í fljótu bragði kem ég ekki auga á neinn; nema að það myndi líklega minnka möguleika sjóðsstjórnarinnar á að "spila" á markaði?
Þó er alltaf ein örugg leið til að þetta séreignarfé mitt geti mjög fljótlega komið að gagni við að eiga við fyrrnefnda gjaldþrotavalda búsins míns!! Þessi séreignarsjóður minn erfist nefnilega, öfugt við sameignarlífeyrissjóð, sem ég hef líka greitt til öll þessi ár. Búið mitt þyrfti sem sagt að vera orðið DÁNARBÚ; og erfingjar gætu varið eignirnar. Þarf þetta virkilega til?????
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.10.2008 | 19:19
Hvað fær Jón Baldvin í laun?
![]() |
Þögn ráðamanna mótmælt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
20.10.2008 | 08:57
Til hvers SÞ?
![]() |
Framboð Íslands út í hött? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.10.2008 | 11:02
Ólánleg myndlíking!
![]() |
Hér hreyfist ekki neitt" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.10.2008 | 16:12
Ég spyr?
Nú er ég bara bókarablók, en ekki dósent í einu eða neinu. Það er því augljóst að við lággróðurinn í bransanum eigum að geta spurt langmenntuðu fræðidósirnar ráða. Ég hef því leyft mér að senda eftirfarandi fyrirspurn til dósentsins yfirlýsingaglaða:
"Ef ég stend við barinn, búinn að fá mér sopa af drykknum sem ég pantaði og rétti barþjóninum VÍSA-kortið, en hann segir "Því miður, ég get ekki tekið kort núna og þú verður að borga með reiðufé!". Staðan er nú samt sú að ég hef ekkert reiðufé meðferðis! Spurning mín til dósentsins, fræðimannsins með yfirburða fagþekkinguna; er: Er ég þar með tæknilega gjaldþrota??"
Ég efast ekki um að hinn virti fræðimaður mun svara mér, óverðugum pöplinum, og þá mun ég láta svar hans flæða um netgáttirnar.
![]() |
Stjórnarformaður Kaupþings: Trúverðugleiki HÍ nálgast gjaldþrot |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)