Ætli stuðningur við ESB aðild hrapi við næstu mælingu?

Það verður fróðlegt að sjá hvort stuðningur almennings við að sækja um aðild að ESB muni hrapa úr ca.70% þegar verður mælt næst??  Eða er kannski bara best að láta það koma óþægilega á óvart þegar skipanirnar koma frá Brüssel og þeim troðið niður í kok á okkur, hvort sem okkur líkar betur eða verr??  Í EES kerfinu höfum við smávegis umþóttunar- og umhugsunartíma þegar tilskipanir koma frá ESB, sett fram mótmæli og tafið mál; þótt á endanum komi líklega allt til framkvæmda hér einnig.  Væru íslenskir vörubílstjórar og hjúkrunarfræðingar kannski á "Mikla-Torgi" í Brüssel að mótmæla, ef Ísland væri í ESB??
mbl.is Mikil vonbrigði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Sturla enn að berjast fyrir þig??

Fávitinn sem réðst á lögregluþjóninn á Kirkjusandi fær vonandi makleg málagjöld fyrir dómstólum landsins, líkt og grjótkastarinn af Suðurlandsvegi.  Hins vegar er spurning hvort Sturla Jónsson fái þau málagjöld sem hann á sannarlega skilin eftir framgöngu sína á liðnum dögum.  Sumir segjast hafa fengið kjánahroll, þegar Sturla var að lýsa hversu gersamlega ókunnur árásarmaðurinn var honum, en lýsti um leið síðustu skurðaðgerðum sem maðurinn hafði farið í.  Svo er ekki um mig; því mér var ljóst frá upphafi "endemisfrægðar" Sturlu, að þar fór siðblindur einstaklingur, gersneyddur öðru en sjálfsáliti og þörf á að skara eldi að eigin köku.  Honum er alveg skítsama um afkomu annarra og jafnvel meðreiðarsveina sinna, eins og nú er komið á daginn þegar hann þekkir þá ekki lengur!  Ég held að það hafi komið Sturlu töluvert á óvart, hve vel honum tókst að slá ryki í augu almennings þegar hann sagðist vera að berjast fyrir ÞIG"!!
mbl.is Sleppt úr haldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband