Ekkert fjárans lýðræði!

Það finnst einn rauður þráður í gegnum alla sögu EB og ESB.  Sá er að býrókratarnir finna alltaf leið framhjá lýðræðinu, ef niðurstöður atkvæðagreiðslna á meðal íbúa þjóðanna er þeim ekki að skapi.  Fyrr á tíð fólst leiðin í að efna til nýrra og nýrra kosninga þar til "rétt" niðurstaða var fengin.  Nýja leiðin er að útiloka atkvæðagreiðslur á meðal kjósenda og láta "þægar" (keyptar??) ríkisstjórnir og löggjafarsamkundur sjá um að "samþykkja" nýjar leiðir til aukinnar miðstýringar.  Þetta gera þeir eflaust með írska neitun líka!
mbl.is Sarkozy: Semjum ekki aftur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Burt með spóa- og lóudráp í Evrópu!

Ég krefst þess að þegar íslensk stjórnvöld fara næst í "samskipti" við ESB, þá krefjumst við þess að allar þjóðir Evrópu banni veiði á spörfuglum eins og lóum og spóum.  Þessar veiðar eru einungis villimannsleg útrás fyrir blóðþorsta, en hefur enga fjárhagslega þýðingu; svo notuð séu rök yfirstéttarfíflsins, fyrrum sendiherra Breta.
mbl.is ESB: Hvalveiðar þvælast fyrir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 10. júlí 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband