Ég spái!

Nú er hver "sprautan" á fætur annarri rekin fram í dagsljósið og látin básúna hvað það sé nú óskaplega hættulegt að fara orðrétt eftir dómi Hæstaréttar.

Spá: Alþingi verður látið blása í tvo daga. Alþingi er svo rekið heim.  Ríkisstjórnin setur bráðabirgðalög sem ákveða að jafnsetja öll ólögleg gjaldeyrislán UPP Í það sem íslensk vísitölulán standa í.


mbl.is Hefðu lækkað vexti meira
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Þá verður byltingin blóðug!

Sigurður Haraldsson, 23.6.2010 kl. 12:55

2 Smámynd: A.L.F

Og hverju spáir þú að verði um það sem lántakendur haf ofgreitt síðan 2008?

Ég segi það enn og aftur ég skrifaði ekki undir verðtryggt lán þegar ég keypti bílinn minn, enda hefði ég ALDREI tekið verðtryggt lán fyrir bíl. Verði raunin sú að lánið mitt breytist í verðtryggt lán er þetta einfalt fyrir mér...ég brenni drusluna og hætti svo að borga af láninu, á hvort sem er ekki neitt annað og sá 900þ kall sem ég borgaði út í bílnum hvarf haustið 2008 og kemur líklega aldrei aftur.

A.L.F, 23.6.2010 kl. 16:46

3 Smámynd: Halldór Halldórsson

Í minum augum er það afar einfalt.  Fjármögnunarfyrirtækið (SP, Lýsing eða eitthvað annað) verður að bjóða nýjan samning.  Þú segir takk fyrir! og skilar lyklunum að bílnum ásamt kröfu um ofgreiðslur, auk innborgunarinnar.  Lög geta aldrei verið afturvirk í þessu tilviki og það eina sem á eftir að komast að samkomulagi um er gjald fyrir nýtingu ökutækisins þennan tíma.  Eðlileg niðurstaða í þeim útreikningi er höfuðstóll "lánsins" deilt með afborgunarfjölda, vaxtalaust!!!  í öllum tilvikum skilarðu ökutækinu og færð ofgreiðslur endurgreiddar!!!

Halldór Halldórsson, 23.6.2010 kl. 18:25

4 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Ef svo er Halldór þá erum við í góðri stöðu gagnvart kvölurum okkar!

Sigurður Haraldsson, 23.6.2010 kl. 19:02

5 Smámynd: Halldór Halldórsson

Ég er samt hræddur um að ríkisstjórnin ætli að reyna annað og að það taki ca. þrjú ár að vinda ofan af því fyrir dómstólum!

Halldór Halldórsson, 23.6.2010 kl. 21:56

6 Smámynd: Guðmundur Pétursson

Ísland á sér ekki viðreisnar von og best að ganga sem fyrst í ESB eða ellegar að afsala sjálfstæðinu til Danmerkur.  Þetta gjörspillta þjófa þjóðfélag sem er með dæmda þjófa á þingi, er þvílíkt bananalýðveldi að verstu ríkin í svörtustu Afríku blikna í samanburði.  Íslendingar eru aumingjar upp til hópa og þurfa á smá aga að halda.  Fyrsta skrefið í því ferli er að afsala sjálfstæðinu enda kunna íslendingar ekki með það að fara.  Flestir komnir af snæris- og sauðaþjófum sem leynir sér ekki í þeirra framferði.  Þetta er keppni um að stela sem mestu og ljúga eins miklu og hægt er.  Þetta er rotið samfélag.

Guðmundur Pétursson, 24.6.2010 kl. 06:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband