30.8.2010 | 10:47
Endilega fá tillöguna til atkvæða á þingi.
Þannig fáum við aftur að upplifa þá hræsnishunda á Alþingi sem segjast vera harðir á móti aðild Íslands að ESB, leggja samvisku sína í drullusvaðið með því að kjósa "rétt" og tryggja þannig áframhald aðlögunar og mútugreiðslna bandalagsins til Íslendinga.
Styður ekki stöðvun viðræðna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Elsku Dóri minn.
Er ekki kominn tími eftir allt lýðskrum síðustu áratuga að þú hættir þessari framsóknarmennsku og leyfir þjóðinni að kjósa um hvort hún/neitendur vilji raunverulegar kjarabætur eður ei.
Kjánlegt hjá þér að nota orð eins og mútugreiðslur og aðlögun. ESB hefur aldrei sótt eftir inngöngu neinna ríkja í þetta stórmerkilega ríkjasamband
Við hvað ertu hræddur?
Hörður Arnarson (IP-tala skráð) 30.8.2010 kl. 11:15
Sælir hrunabandalag ESB er að verða að veruleika og hvað erum við að gera með að sækja um aðild í því og halda að þeir bjargi okkur út úr þeirri krísu sem við erum í er hrein fáviska!
Sigurður Haraldsson, 30.8.2010 kl. 11:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.