11.12.2008 | 10:04
Ókei! Svo langt sem það nær.
Ef þetta er niðurstaðan um sérstök viðbrögð ríkisstjórnarinnar til að létta fólki greiðslubyrðar vegna efnahagsþrenginga eftir bankahrunið; þá er þetta allsendis ófullnægjandi. Það á að opna séreignarsjóðina fyrir öllum, burtséð frá aldri, sem kjósa að taka út innistæður sínar til að verja eignir, sem annars myndu glatast í gjaldþroti. Ég hef enn ekki séð neinn sem er mótfallinn þessari aðgerð, nema sjóðagreifana sem auðvitað myndu missa spón úr markaðsspilaaski sínum.
Mega taka séreignasparnaðinn út í einu lagi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.