27.2.2009 | 10:53
Tekjur, eignir og skattar seðlabankastjórans 2006 og 2007!
Farið inn á linkinn hér að ofan og þá sjáið þið tekjur, eignir og skatta áranna 2006 og 2007 þessa spekings. Hann hlýtur að hafa komist í einhverja útrásina miðað við að eignir hans aukast um 12 milljónir norskra króna á milli þeirra ára. Og ég er ansi hræddur um, miðað við tekjurnar hans 2007, að hans þurfi að vera eitthvað hærri en þessi lúsarnánös sem íslenskir seðlabankastjórar fá á mánuði.
Skilur vandamál Íslands | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Eða mögulega að hann sé í þessu á annarri ástæðu. Ef þessum manni tækist að lyfta grettistaki á íslenskum fjármálamarkaði á meðan hann er starfandi eru góðar líkur á því að orðspor hans aukist til muna. Öll augu eru á Íslandi um þessar mundir í kjölfar kreppunnar og því ekki til betri augulýsing en að vera seðlabankastjóri hérlendis ef hann nær að gera góða hluti í starfi.
Brynjar Jóhannsson, 27.2.2009 kl. 11:02
Sæll alnafni úr Hafnarfirðinum,
Í kvöldverðarboði hjá virðulegum samtökum í Hafnarfirði fyrir stuttu var samþykkt sú ályktun að besta ráðið út úr kreppunni væri að segja Norðmönnum stríð á hendur, sigla einu varðskipi til Bergen og gefast þar upp skilyrðislaust.
Þessi leið er bara önnur útgáfa af þeirri lausn :)
Halldór Halldórsson (IP-tala skráð) 27.2.2009 kl. 11:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.