Landsfundarhófinu startað of snemma!

Ég er einn fulltrúa á Landsfundi Sjálfstæðisflokksins og hlýddi á ræðu Davíðs Oddssonar.  Eins og vænta mátti, fór hann ríðandi á fyndnisfáknum um víðan völl og mér fannst að þetta hefði verið upplagt sem skemmtiatriði á Landsfundarhófinu sem verður haldið í kvöld.  Auðvitað kom í ljós að hann er sannfærður um að honum hefur aldrei orðið neitt á í verkum sínum né framgöngu.  Ljósast fannst mér það þegar hann fjallaði um fjölmiðlalögin frægu; þar sem hann er gersamlega blindur á að það var hann sjálfur sem eyðilagði það mál með ofstopaframkomu sinni.  Loks þegar hann réðst persónulega að Vilhjálmi Egilssyni var mér nóg boðið og ég gekk út úr salnum! 


mbl.is Víkingar með Samfylkingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Svala Jónsdóttir

Gott hjá þér!

Svala Jónsdóttir, 28.3.2009 kl. 18:56

2 identicon

Flott hjá þér - þetta hefðu fleiri landsfundarmenn mátt gera, en ekki átt að sitja hlæjandi og klappandi undir ruglinu í aumingja manninum.

Ingibjörg Ágústsdóttir (IP-tala skráð) 28.3.2009 kl. 23:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband