Þjóðníðingar??

Nú er upplýst að gögn um að Ísland hafi haft mikla möguleika á málssókn á hendur breskum stjórnvöldum, hafi verið sýnd íslenskum stjórnvöldum á þessu ári.  Þessum gögnum hefur verið haldið leyndum fyrir Alþingi þar til nú í dag.  Meira að segja er fullyrt að Össuri Skarphéðinssyni hafi verið kynnt þetta allt á fundi í London.  Svo er sagt að formaður samninganefndar Íslands, Svavar Gestsson, hafi ákveðið að það þyrfti ekkert að sýna ráðherranum allt sem væri í skjölunum.  Hverju á maður að trúa?  Lenti Össur á fylleríi og mætti ekki á fundinn?  Var Svavar Gestsson að framfylgja skipunum flokksbróður síns, Steingríms J. Sigfússonar?  Eru hér þjóðníðingar á ferð?
mbl.is Meginefnið liggur skýrt fyrir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: hilmar  jónsson

Eða ert þú að misskilja allt ?

hilmar jónsson, 30.12.2009 kl. 00:13

2 identicon

Nei Halldór, það er engin misskilningur í gangi hér, þó að atburðarásin virðist lygileg.

Það sem maður var vitni að með því að horfa á Alþingisrásina í kvöld fær mann til að trúa að stjórnin sé að reyna troða þessu upp á okkur með einhverjum annalegum hvötum.

Gísli (IP-tala skráð) 30.12.2009 kl. 00:16

3 identicon

Maður á bara ekki orð yfir framkomu ríkis"stjórnarinnar" og hennar undirsáta (lesist Svavar Gests í þessu tilviki).

Hvað er eiginlega í gangi? Ég held ég hafi sjaldan séð meira krassandi efni en beina útsendingu af vef Alþingis í kvöld.

Ég á bara ekki aukatekið orð..........

BURTU MEÐ ÞESSA "STJÓRN" OG ÞAÐ Í EINUM GRÆNUM!

OG EF SATT REYNIST (MEÐ UNDANSKOT SVAVARS Á GÖGNUM) Á HANN HVERGI ANNARSSTAÐAR HEIMA EN Í STEININUM FYRIR LANDRÁÐ.

SAMA Á VIÐ UM ÖSSUR EF HANN HEFUR LEYNT FYRIR ALÞINGI FUNDINUM Í LONDON OG/EÐA ÞEIM GÖGNUM SEM HONUM EIGA ÞAR AÐ HAFA VERIÐ KYNNT.

Páll Rúnar Pálsson (IP-tala skráð) 30.12.2009 kl. 00:36

4 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Það erum við sem ráðum mætum að alþingi stoppum þessa pólitísku nauðgun á okkur og börnum framtíðar.

Sigurður Haraldsson, 30.12.2009 kl. 01:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband