Ekki fyrir mig!!!

Sturla Jónsson og félagar munu aldrei koma fram fyrir mína hönd í einu eða neinu!  Telji ég þörf á því, vel ég slíka aðila sjálfur, en það er sorglegt hve fáir virðast sjá í gegnum lygavefinn sem padda á borð við Sturla getur ofið vegna megnrar sýni- og fjölmiðlaþarfar.
mbl.is Fyrst og fremst táknræn athöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hún yrði þá rannsökuð fyrst!

Ef svo ömurlega færi að tilræði yrði gert við Obama fram að kosningunum í haust; er þessi yfirlýsing hrokakvensunnar bein vísun til þess að FBI ætti að snúa rannsókn málsins fyrst að henni!
mbl.is Clinton vísar til morðsins á Robert Kennedy
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverjum er ekki sama um hvað Ingva Hrafni finnst??

Ég á oft óskaplega erfitt með að skilja hvað fjölmiðlamenn eru að fara þegar þeir gera veður yfir því hvað hinn og þessi spreðibassinn lætur hafa eftir sér.  Halda þeir virkilega að Ingvi Hrafn Jónsson sé þannig áhrifamaður, að það sé túskildings virði hvað hann segir um menn og málefni?  Og halda þeir jafnvel að það sé viðkomandi manni eða málefni til góðs, að Ingvi Hrafn lýsi þar stuðningi sínum?
mbl.is Lýsir stuðningi við Júlíus Vífil
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

DV er og verður sorprit!

Auðvitað stendur DV við lygi sína, eins og alltaf.  Það sem sorapakkið þar, í þrælsótta sínum, heldur að komi eigendum sínum vel, munu þeir alltaf birta.  Það eina sem ég skil ekki, er að nokkur maður skuli kaupa þetta sorp- og klámrit!
mbl.is DV stendur við frásögn sína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Baugsblaðamenn samir við sig!

Allt frá fyrstu stund hefur ótrúlegur fjöldi þeirra sem titla sig blaða- og fréttamenn verið tilbúnir til að selja sig og sitt hafurtask, jafnvel óumbeðið, auðmönnum þeim sem hafa haldið um stjórnartaumana hjá Baugi.  En það á ekki að koma neinum á óvart að alla helstu skíthælana í blaða- og fréttamannastétt er að finna á DV!
mbl.is Ríkislögreglustjóri segir DV fara með ósannindi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvar finn ég kratamótmælin frá fyrri tíð?

Getur einhver bloggarinn hjálpað mér við að finna mótmæli og hneykslunargreinar krata frá því að téður Jakob, sem bar víst Frímannsnafnið með rentu, var ráðinn menningar- og magaklappskommisar við sendiráðið í London á valdatíma Jóns Baldvins Hannibalssonar?

 Og ég bið bloggara um að misskilja ekki spurningu mína sem einhvern "latent" stuðning við ráðningu Jakobs sem kjölturakka Ólafs F. í Reykjavík!  Mér vitanlega hefur maðurinn alls staðar verið til óþurftar, nema á sviði með Stuðmönnum og við aðra slíka menningarástundun!


mbl.is Óánægja vegna launakjara Jakobs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband