Fæ ég stuðning??

Mér er alveg meinilla við þennan &##%Z!!'s 30 km hámarkshraða hér í Þingholtunum.  Ég er alveg pottþéttur á 50 km, sem er auðvitað rétti hraðinn til að vera á.  Ég bara skil ekkert í að vera þvingaður með einhverjum ólögum til að vera á þessu skjaldbökustigi, þegar ég hef yfir að ráða tæki sem er gert til að fara mun hraðar yfir.  Haldið þið að ég fái ekki örugglega stuðning við að reka mannréttindamál í Strassborg, ef ég verð nappaður við að keyra of hratt??  Ég held jafnvel að þeir í Sandgerði geti keyrt á 50 út um allan bæ, án þess að eiga slíka valdníðslu yfir höfðum sér!!??
mbl.is Bátur á ólöglegum veiðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekkert fjárans lýðræði!

Það finnst einn rauður þráður í gegnum alla sögu EB og ESB.  Sá er að býrókratarnir finna alltaf leið framhjá lýðræðinu, ef niðurstöður atkvæðagreiðslna á meðal íbúa þjóðanna er þeim ekki að skapi.  Fyrr á tíð fólst leiðin í að efna til nýrra og nýrra kosninga þar til "rétt" niðurstaða var fengin.  Nýja leiðin er að útiloka atkvæðagreiðslur á meðal kjósenda og láta "þægar" (keyptar??) ríkisstjórnir og löggjafarsamkundur sjá um að "samþykkja" nýjar leiðir til aukinnar miðstýringar.  Þetta gera þeir eflaust með írska neitun líka!
mbl.is Sarkozy: Semjum ekki aftur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Burt með spóa- og lóudráp í Evrópu!

Ég krefst þess að þegar íslensk stjórnvöld fara næst í "samskipti" við ESB, þá krefjumst við þess að allar þjóðir Evrópu banni veiði á spörfuglum eins og lóum og spóum.  Þessar veiðar eru einungis villimannsleg útrás fyrir blóðþorsta, en hefur enga fjárhagslega þýðingu; svo notuð séu rök yfirstéttarfíflsins, fyrrum sendiherra Breta.
mbl.is ESB: Hvalveiðar þvælast fyrir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband