Var þetta einhver allt önnur Álfheiður Ingadóttir

en Álfheiður Ingadóttir þingmaður Vinstri Grænna sem stóð og hvatti rumpulýðinn við Lögreglustöðina við Hverfisgötu til ódæðisverka og réðst síðan harkalega á lögregluna þegar hún beitt piparúða til að varna því að glæpaskríllinn bryti sér leið inn á lögreglustöðina? Ja! Svei því auma þingliði sem fyllir sveit Vinstri Grænna!
mbl.is Veruleikafirrt ummæli dómsmálaráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verður stólakokkteillinn banabiti Samfylkingarinnar?

Þá er það ljóst!  Samfylkingunni er fjandans sama hvernig allt rúllar, bara ef hún fær forsætisráðherrastólinn.  Og Pandóra ætlaði meira að segja ekki að setjast í hann sjálf, heldur kalla til næsta formann flokksins, Dag B. Eggertsson.  Þó er forvitnilegt að sjá, að þessi sami kokkteill er ekki til blöndunar við "vinstur-stjórnina" (vinstur=allt sem kemur frá henni er hálfgerð drulla), þar ætlar Pandóra að sitja sjálf, líklega stútfull af þreki sem hún hefði ekki í stjórn með Sjálfstæðisflokki.
mbl.is Stjórnarsamstarfi lokið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Úllen, dúllen, doff!

Kikkelani, koff ........  og það er Dagur B. Eggertsson, næsti formaður Samfylkingarinnar!
mbl.is „Þurfum öfluga starfsstjórn"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kemur ekki á óvart úr þessari átt!

Ég hef líka fyrir satt, að Guardian telji Geir Haarde bera höfuðábyrgð á ástandinu fyrir botni Miðjarðarhafs og lélegu gengi Tottenham í enska boltanum.
mbl.is Geir Haarde sagður ábyrgur fyrir hruninu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rumpulýðurinn mættur til leiks.

Það var svossum auðvitað að skríllinn myndi ekki sitja lengi auðum höndum áður en öfuguggafýsnir þeirra og duldir tækju yfir.  Svo var áhugavert að heyra frá einum lögregluþjóninum sem hefur staðið í vörninni gegn skemmdarskrílnum, undrast þegar hann sá nokkra af helstu eggja- og grjótkösturum undanfarinna vikna, allt í einu vandlega merkta með appelsínugulum friðar- og spektarborðum.
mbl.is Skemmdarverk við Seðlabankann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverju skyldi Hallgrímur vera að mótmæla?

Er hann kannski að mótmæla meðferðinni útrásarvini sínum Jóni Ásgeiri Jóhannessyni?

Eða kannski bara meðferð Sjálfstæðismanna á Baugi, helstu peningauppsprettu sinni?


mbl.is Mótmælt við Valhöll
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Má hafnfirska Samfó hafa skoðun?

Eigum við ekki bara að fara fram á að hafnfirskir forráðamenn Fylkingarinnar hafi uppi sömu vinnubrögð og síðast þegar stórmál var á ferðinni;  íbúakosning um stækkun ÍSAL?  Að láta ekkert í ljós um eigin skoðanir, svo almenningur geti sjálft gert upp hug sinn í friði og ró?  Ég bíð t.d. alltaf eftir því að Samfylkingin tilkynni að hún ætli að gera þetta á landsvísu þegar kemur að atkvæðagreiðslu um aðild að ESB!
mbl.is Samfylking í Hafnarfirði vill slíta stjórnarsamstarfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og Árni Páll ætlar í stjórnarsamstarf með ....... ???

Missti ég af einhverju, eða eru Vinstri Grænir og Framsókn búnir að skrifa undir að "ESB-UMSÓKN ÞOLIR ENGA BIÐ"?
mbl.is ESB-umsókn þolir enga bið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Styð hvert einasta orð!

Loksins hreyfing sem er til komin vegna ástandsins sjálfs, en ekki sýniþarfar skemmtikrafta og annarra sem eru hætt að fá bitana sem til skamms tíma féllu af borðum auðmannanna.
mbl.is Appelsínugul og friðelskandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einhver hlýtur að fá skammir hjá Reykjavíkurborg.

Ég ætla rétt að vona að Hanna Birna hafi í sér döngun til að taka einhvern undirsátann hjá Reykjavíkurborg á teppið fyrir að vera ekki löngu búinn að fjarlægja trélíkið úr freistingarfæri rumpulýðsins!  Ég geng þó ekki svo langt að krefjast afsagnar Hönnu Birnu fyrir þessa yfirsjón, eins og skríllinn ætti auðvitað að gera samstundis.
mbl.is Óslóartréð borið á bálið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband