1.9.2008 | 21:53
Nú þarf ca. 10% atvinnuleysi!
Hér í Hafnarfirði munaði 88 atkvæðum að samþykkt yrði stækkun álversins í Straumsvík. Það eru ansi margir sem nú "ganga með veggjum" og vildu að þeir hefðu aldrei úttalað sig um þetta og ennþá fleiri sem segjast "auðvitað hafa kosið með stækkun"; þó ég viti að þeir sömu sátu heima og tóku ekki þátt í kosningunni.
En!?? Er ekki hægt að krefjast annarrar atkvæðagreiðslu? Getum við, sem viljum nýta auðlindir Íslands, ekki tekið saman og látið "RÖDD" okkar heyrast?? Hvernig væri að setja saman hóp sem er með undirskriftasöfnun um allt land; að nú verði ráðist í 1) Álver í Helguvík, 2) Álver að Bakka, 3) Stækkun í Straumsvík og 4) Olíuhreinsun á Vestfjörðum? Ég er til í átak!
Halldór Halldórsson, hahaha@erskil.is
![]() |
Skiptar skoðanir um ákvörðun Þórunnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)