23.6.2010 | 12:26
Forystan endurspegli breytingarnar!
Nú verður þetta í fyrsta skipti sem ég sit ekki landsfund síðan um 1980, en græt það svo sem ekki! Enda sagði ég mig einn og óstuddur úr flokknum, eftir að það kom fram hjá formanni flokksins að hann sæi ekki annað en hann sjálfan í embætti formanns næstu misseri. Ég tel hins vegar að flokkurinn verði orðinn 10% +/- flokkur innan mjög skamms tíma, verði ekki strax hreinsað verulega til í forystuliði flokksins. Og ef við bætist að flokkurinn herði ESB-andstöðu sína á landsfundi, er enn frekar þörf á formannsskiptum. Bjarni Benediktsson verður aldrei trúverðugur talsmaður andstöðu gegn ESB!!
![]() |
Sjálfstæðismenn ræða Evrópumál |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.