29.5.2008 | 10:45
Ekki fyrir mig!!!
Sturla Jónsson og félagar munu aldrei koma fram fyrir mína hönd í einu eða neinu! Telji ég þörf á því, vel ég slíka aðila sjálfur, en það er sorglegt hve fáir virðast sjá í gegnum lygavefinn sem padda á borð við Sturla getur ofið vegna megnrar sýni- og fjölmiðlaþarfar.
Fyrst og fremst táknræn athöfn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
þú ert sjálfur padda andskotans blýantsnagarinn,hefur sjálfsagt það góð laun að þú hefur efni á þeim álögum sem á þig eru lagðar.
þú ættir að gæta að lýsingarorðunum sem þú velur fjandskotans prumphænsnið þitt.
Atvinnumaður (IP-tala skráð) 29.5.2008 kl. 11:11
Atvinnumaður.. Kemur úr hörðustu átt plebbinn þinn!
Það er greinilegt að þú tilheyrir trukkaplebbunum, ef tekið er mið af skrifum þínum. Sendir þú ekki líka miðfingurinn til stjórnarmanna?
Arna (IP-tala skráð) 29.5.2008 kl. 11:49
Arna, því kemur þetta úr hörðustu átt?
Og já ég sendi þeim hiklaust miðfingurinn því þeir hvorki hugsa né vinna mér og mínum til hagsbóta, þvert á móti hafa þessir glæpamenn beinlínis unnið gegn mér og mínum hagsmunum.
ert svo sjálf plebbi
Atvinnumaður (IP-tala skráð) 29.5.2008 kl. 13:38
Það er nú varla að maður hætti sér á milli slíkra blogga, en ég ekki látið hjá líða að segja hversu óumræðilega slétt mér er sama þótt einhver ritbleyðan ausi úr lýsingarorðakoppnum sínum; felandi sig, slefandi, með dregið fyrir, á bak við leynipilsfaldinn í tölvunni sinni. Og Arna, ég játa fyrir þér að miðfingurinn minn hefur ansi oft farið á loft gagnvart trukkastjórum á undanförnum misserum, þótt það sé lítið viturlegt og geri ekki nokkurt gagn! Síðast fór puttinn á loft í morgun þegar einn þeirra reyndi að drepa bílstjóra og farþega bílsins fyrir framan mig sem ætlaði að leggja af stað á grænu ljósi í Engidalnum; þegar einn átján hjóla (eða hvað þau eru mörg hjólin) sturlaður æddi yfir gatnamótin löngu eftir að hafa fengið rautt ljós á móti sér.
Halldór Halldórsson, 29.5.2008 kl. 14:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.