Hver borgar?

Ansi mörgum er tíðrætt um kostnað við ferðir menntamálaráðherra til Peking á ólympíuleikana.  Ég hef hins vegar ekki séð stafkrók um kostnað vegna óvæntrar heimferðar forsetans til að sæma handboltamenn fálkaorðum!  Hvers vegna?  Kemur sá kostnaður kannski úr öðrum vasa?


mbl.is Ólafur Ragnar í Bangladess
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég verð aleinn heima!

Auðvitað blóðlangar mann til að vera í fjölmennum hópi einhvers staðar til að fagna árangri íslenska handboltaliðsins.  En ég er bara svo handviss um að það sé alveg bráðnauðsynlegt að ég sitji einn og horfi á leikinn, eins og alla leikina til þessa ..., nema einn.  Það var leikurinn gegn Suður-Kóreu, sem tapaðist!  Svona verður maður hjátrúarfullur þegar handboltinn er annars vegar og ég er viss um að aðrir hafa svipaða sögu að segja?  T.d. heyrði ég um einn sem ekki skipti um nærbuxur og sokka við að horfa á næstbesta árangur landsliðsins á OL í Barcelona.  Sá var víst ekki orðinn mjög vinsæll félagi í hópi fólks þegar yfir lauk!
mbl.is Víða safnast saman vegna leiksins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heia Norge!

Þetta var stórkostlegur leikur hjá norsku stelpunum og þær rússnesku áttu eiginlega ekki minnsta möguleika eftir byrjunina.  Verðugir Ólympíumeistarar.  Og nú verð ég líklega úthrópaður "karlpungur", þegar ég segi að það skemmi ekkert fyrir norska liðinu, að þær eru hver annarri fallegri.  Mig minnir endilega að norskar stelpur hafi ekki verið svona fríðar, upp til hópa, þegar ég bjó og lærði þar í um 3 ár á tímabilinu 1971-1975.  En líklega var það bara að ÉG hafði ekki séns í sætu stelpurnar og þóttist því ekki sjá þær.

Varðandi Rússaliðið:  Er það ekki að verða liðin tíð að þjálfarar íþróttaliða séu eins og trylltir Brésnevar, með ýtingar og húðskammir?  Ég beið bara eftir því að hann löðrungaði stelpurnar!


mbl.is Norðmenn ólympíumeistarar í handbolta kvenna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Plíííís? Ekki Smáralind!

Má ég biðja um að Ólympíuförum verði fagnað á einhverjum betri stað en í búðarhorni Smáralindar, þegar þau koma heim?  Helst á Laugardalsvelli, ef veðurútlit er gott; annars í Laugardalshöll!  Þetta eru verðugir staðir til að fagna íþróttaafrekum.
mbl.is Íslenska þjóðin fagnar sigri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísland er stórasta land í heimi!

Þetta sagði forsetafrúin okkar í frammíkalli í sjónvarpinu og alveg hægt að taka undir það, allt til loka Ólympíuleikanna.  Og ég styð það alveg heishugar að Þorgerður Katrín fari út og samfagni með liðinu og öðrum ólympíuförum á sunnudaginn.  Svo höldum við hátíð þegar liðið kemur heim í næstu viku, en má ég biðja um einhvern stað annan en Smáralind?  Laugardalsvöll ef veðrið leyfir, annars Laugardalshöll!
mbl.is Þorgerður Katrín: „Ég fer út að fagna með strákunum"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Líf eða dauði!" "Bíííííííp!"

Það er eitthvað alveg einstakt við að fylgjast með handboltalandsliði á Ólympíuleikum.  Það er alltént öðruvísi en þegar liðið leikur á EM eða HM.  Það kemur t.d. ekki fyrir á þeim mótum að maður situr kannski aleinn í stofunni fyrir framan sjónvarpið og er að hvetja liðið upphátt!  "Strákar! Það eru bara sex mínútur eftir."  Að bíta saman tönnum svo brakar í jöxlum, með kreppta hvíta hnúa: "Halda svo í vörninni!"  Svo verður maður allt í einu alveg óskaplega hjátrúarfullur og er alveg viss um að eigin hegðan hefur áhrif á úrslit leiks sem er spilaður í átta tímabelta fjarlægð.  Ég er t.d. viss um að það var mér að kenna að Ísland tapaði fyrir S-Kóreu; af því að það er eini leikurinn sem ég missti af að horfa á.

Ég vil því fá að þakka fyrir mig áður en kemur að síðustu rússíbanareið tilfinninganna og maður fer kannski að leita að öðrum sökudólgum en manni sjálfum, vegna tapleiks.  Megi liðinu (leikmenn, þjálfarar og hjálparlið) öllu ganga sem allra best, en ég held að ég eigi enga ósk heitari en að Óli Stef fái medalíu á OL 2008!


mbl.is Spánverjar hafa bætt sig jafnt og þétt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Endilega mótmæla!

Ég vil skjóta hugmynd að Önnu Pálu og rumpulýðnum frá því á Ráðhúspöllunum í janúar.  Mótmælið með því að mæta ekki á einn einasta viðburð á Menningarnótt á laugardaginn!  Það verður þá minni troðningur þar fyrir mig og aðra sem ætla að fagna því sérstaklega að Ólafur F. er ekki lengur borgarstjóri.
mbl.is Sleppa pöllunum en mótmæla fyrir utan ráðhúsið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pathological!

Ég bið bloggara um að fara mjúkum höndum um Ólaf F. Magnússon, vegna þess að þar fer svo greinilega maður illa sjúkur.  Nú er ég ekki læknislærður maður en ég hef heyrt að oft fari saman að vera haldinn lygasýki (pathological liar) og ofsóknargeðklofa (paranoid schizophrenic) og það er hreinlega illa gert að vera að fjalla mikið um illa fatlað fólk.  Svo er víst ekki hægt að fara fram á að læknirinn Ólafur F. Magnússon kippi þessu í liðinn (Healer! Heal thy self), því þar á bæ er ekki að finna neitt annað en "nítjándualdar" litteratúr, læknistól og -tæki.

 Hins vegar er sjálfsagt að deila hart á flokkssystkin mín í Sjálstæðisflokknum fyrir að vera svo skyni skroppin að sjá ekki hvernig í pottinn var búið í janúar síðastliðinn.


mbl.is Ólafur F. Magnússon: Stöðvaði brottrekstur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Falskur tónn í Tjarnarkvartett?

Tók ég einn eftir því sem Óskar Bergsson sagði um "plott"-fund Tjarnarkvartettsins í gærmorgun? Óskar sagði í sjónvarpinu, beinum orðum, að þar hefðu VG (Þorleifur) lagt til að hann færi á fund eða hringdi í Ólaf F. og myndi segja honum að Framsókn myndi aldrei starfa með Sjálfstæðisflokknum í nýjum meirihluta.  Óskar gaf einnig sterklega í skyn að þetta hefði verið gert með velþóknun Samfylkingar (Dags B.).  Þannig átti að véla Ólaf F. til að enginn möguleiki væri annar í stöðunni en að Tjarnarkvartettinn kæmi aftur til valda og þá yrði Ólafur auðvitað sjálfur að víkja eftir allt sem á undan væri gengið og hleypa Margréti Sverrisdóttur, eðalsópran kvartettsins, að .  Greinilega beit Óskar ekki á agnið og þá var Þorleifur bara sendur til Ólafs til að ljúga því að honum að þetta væri staðan og allt yrði klappað og klárt þegar Sjálfstæðisflokkurinn sliti samstarfinu við Ólaf formlega.  Í ranni hrokagikksins Dags B. Eggertssonar heita þetta ekki "klækjastjórnmál", sem hann sakar Sjálfstæðisflokkinn um að hafa einkarétt á!!!  HVað heitir þetta þá???

Hverju ætli Evrópusambandið hafi lofað Rússum?

1.  Ætli sé búið að lofa að Georgía verði aldrei aðili að NATO??

2.  Að "Evrópa" setji sig ekki upp á móti því að Rússar innlimi S-Ossetíu og Abkasíu?

3.  Að Alþjóðadómstóllinn rannsaki ekki frekar þjóðarhreinsanir Rússa á þessum svæðum?

4.  Að "Evrópa" muni sýna "skilning" á því að Rússar þurfi að "vernda hagsmuni" þeirra sem bera rússnesk vegabréf, en kjósa að búa innan landamæra annara sjálfstæðra ríkja, eins og t.d. Eistlands, Lettlands og Litháen?


mbl.is Rússar styðja friðarumleitanir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband