Færsluflokkur: Bloggar

Aldrei í mínu nafni!

Rumpulýðurinn sem grípur til ofbeldis gegn lögreglu og eigum okkar allra talar aldrei í mínu nafni!

Hörður Torfason talar aldrei í  mínu nafni! 

Kristján Hreinsson talar aldrei í mínu nafni!

Magga Stína talar aldrei í mínu nafni!


mbl.is Mótmæli fram á nótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tillaga og ráðlegging!

Þeir sem eru handteknir og sóttir af lögreglu í fjárnám hjá sýslumanni geta þagað þunnu hljóði við fyrirtökuna.  Ekki að segja eitt aukatekið orð, ekki að skrifa undir eitt né neitt og sjáið vandræðin sem yfirvaldið lendir í!
mbl.is 500 mál enda hjá lögreglu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skyldu sömu kröfur vera uppi?

Skyldi Willem H. Buiter, prófessor við London School of Economics, setja fram kröfu um að seðlabankastjóri, forsætis- og fjármálaráðherra Bretlands segi allir af sér störfum?  Og hvers vegna í ósköpum var prófessorinn aldrei spurður um Svartfjallaland í sambandi við einhliða upptöku evrunnar.  Tóku þeir ekki ekki upp evruna einhliða, án þess og að spyrja kóng né kúk, en er nú boðið til fullrar ESB-þátttöku með pompi og pragt?
mbl.is Mesti samdráttur í Bretlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað með hryðjuverkaógnina?

Ég trúi ekki að nokkur breskur pólitíkus né tindáti, þori að mæta á slóðir þar sem íslenskir hryðjuverkamenn eru við hvert fótmál!
mbl.is NATO-ráðstefna um öryggi á norðurslóðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forðist viðskipti við Lýsingu.

Það er alveg ljóst að Lýsing hf er langsamlega verst af fjármögnunarfyrirtækjunum við að mæta viðskiptavinum sínum í greiðslukröggum. Enda er Lýsing í eigu EXISTA og stjórnarformaðurinn heitir Lýður Guðmundsson.
mbl.is Ganga ekki að frystingu vísri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lygaþvæla!

Sigurbjörg er bara að ljúga þessu upp, í einhverju upphafningarskyni.  Þykjast vera eitthvert númer,  sem "meir-að-segja" RÁÐHERRAR séu titrandi yfir hvað segi á fundum. 


mbl.is Guðlaugur kemur af fjöllum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rumpulýðurinn enn á ferð!

Jæja!  Lögreglan hefur þó alltént sýnt af sér þá döngun að handtaka glæpamenn við afbrot sín.  En sjálfsagt eru þetta eignalausar landeyður á framfæri ættingja og við skattgreiðendur sitjum uppi með skaðann.
mbl.is Tveir mótmælendur handteknir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rumpulýður!

Rumpulýður Evu Hauksdóttur og Hlyns Hallssonar halda sínu striki við "friðsamleg mótmæli", að því er virðist með velvilja lögreglunnar!  Stefán Eiríksson er orðinn svo "líbó" að liðið hans stendur bara hjá hvað eftir annað og leyfir grímuklæddu glæpahyski að fremja skemmdarverk á eigum annarra. Hvers konar raggeitur er verið að ala upp í löggæsluliði landsins?  Ég geri að tillögu minni að Stefán Eiríksson grímuklæði lögregluþjónana líka; alveg eins og bleyðurnar í  liði Evu og Hlyns, sem ekki þora að láta þekkja sig!
mbl.is Mótmælt við stjórnarráðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver fær silikhanskameðferð?

Það verður forvitnilegt að sjá hvernig þeir Gunnar Smári og Mikael taka á Jóni Ásgeiri og Baugsveldinu við þessa umfjöllun, miðað við að þeir félagar voru á kafi í vösum Baugskassans og gengu beinna erinda þess hyskis við hvert fótmál um margra ára skeið??
mbl.is Gunnar Smári Egilsson: Erum að losna við mikið kjaftæði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

St.John??

"Ólíkt sumum öðrum athafnamönnum hef ég alltaf borgað mína skatta og staðið við skyldur mínar á Íslandi."

 Mér finnst nú bara síðasta sort hjá "heilögum" Jóni að nefna ekki nöfn þeirra athafnamanna sem aldrei borga sína skatta né standa við skyldur sínar á Íslandi.  En, hvers vegna ætli Jón Ásgeir velji sér Ísland sem skattavettvang?  Skyldi það ekki vera vegna þess að hann og lögmannahirð hans telur íslenska kerfið auðveldara viðfangs en, t.d. það breska?  Ég get ekki betur séð en að Jón og Baugshirðin öll hafi getað dregið kerfið, frá bönkum og alla leið upp í Hæstarétt á asnaeyrunum.  Og þeim hefur líka tekist að fá gífurlega stóran hluta almennings til að trúa því að þetta hafi allt verið gert í þeirra þágu og að það hafi aldrei hvarflað að þeim að hygla sér sjálfum persónulega.


mbl.is Jón Ásgeir: Ekki sama hver á í hlut
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband